Í byrjun júnímánaðar bárust forsvarsmönnum Quality Console þær góðu fregnir að fyrirtækið hefði hlotið styrkúthlutun úr Lóu, nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina.
Alls bárust 89 umsóknir frá fyrirtækjum og einstaklingum af hinum ýmsu sviðum og hlutu 27 umsóknir styrk. Það er því mikill heiður fyrir QC að hljóta styrk á borð við þennan.
Ljóst er að þetta er gríðarleg lyftistöng fyrir starfsemi Quality Console en með styrknum gefst forsvarsmönnum tækifæri á að innleiða eftirtektarverðar breytingar á gæðakerfinu ásamt því að hefja sókn í öflun viðskiptavina upp að vissu marki, en betur má ef duga skal.
Það eru því spennandi tímar framundan hjá Quality Console enda af nægum verkefnum að taka.
Latest
More from the site
Fjölnir Unnarsson
Ísfélagið notar Quality Console
Quality Console mætti annað árið í röð á alþjóðlegu sjávarútvegssýninguna í Barcelona í byrjun maí mánaðar til þess að kynna stafræna gæðakerfið okkar. Margt var um manninn eins og við var að búast o
Read post
Fjölnir Unnarsson
Eyjabiti notar Quality Console
Við hjá Quality Console erum afar stoltir af því að tilkynna að Eyjabiti, harðfiskverkun á Grenivík, hefur valið gæðakerfið okkar til að styðja við starfsemi sína. Quality Console hentar sérstaklega
Read post
Fjölnir Unnarsson
Quality Console í Hlunn Driftar EA
Undir lok síðasta árs bárust forsvarsmönnum Quality Console afar gleðilegar fréttir: félagið hafði verið valið inn í Hlunn Driftar EA á Akureyri. Drift EA er nýtt nýsköpunarsamfélag á Akureyri sem st
Read post